Arena sundföt
Um Arena
Arena er ítalskt vörumerki sem var stofnað árið 1973 sem sundfatamerki. Sundfatnaðurinn er ítalsk hönnun og framleiddur úr hágæða efnum og hafa vörurnar verið þróaðar með þeirri innsýn sem hefur fengist í gegnum 50 ára samstarf við íþróttamenn á heimsmælikvarða. Markmið Arena er að bæta lífsgæði allra þeirra sem klæðast fatnaðinum í og við sundlaugina og hvetja fólk til að stunda aktívan lífsstíl.
Hugmyndin að Arena sem er í dag bæði íþrótta- og sundfatamerki, fæddist á Ólympíueikunum í München 1972. Arena hefur þá hugsjón að framleiða heimsklassa fatnað sem stenst hörðustu kröfur og hefur fæðst af ástríðu þeirra fyrir íþróttum, nýsköpun og fallegri ítalskri hönnun. Arena hefur að auki þá hugsjón að framleiða allar vörur á sem umhverfisvænasta hátt og tryggja bestu mögulegu upplifun viðskiptavina þar sem hvert smáatriði í vörunum er hugsað til tryggja frammistöðu, þægindi og falleg snið.