Sundbolir

Sundbolur fyrir sundlaugina, heita pottinn og sjósundið, frá Arena og Solid & Striped.

Síur

Raða eftir:

Hvaða sundbolur hentar þér?

Hvaða sundbolur hentar þér fer eftir því í hvað þú ætlar að nota hann og hvaða kröfur þú gerir um endingu. Oft þarf að velja á milli hámarksendingar og meiri þæginda. Sundbolir úr mjúkum og teygjanlegum efnum þola klór yfirleitt verr en sundbolir úr endingargóðu pólýester, og það á ekki síst við í heita pottinum, þar sem hitinn eykur áhrif klórsins. Sniðið skiptir líka máli: bakið, hlýrarnir og fótaskurðurinn ráða því hvernig sundbolurinn situr og hversu mikinn stuðning hann veitir.

Hjá Lúdus finnur þú sundboli fyrir konur, sundboli barna, sundboli með aðhaldi, sundboli með skálmum, sundboli í stórum stærðum og meðgöngusundboli. Klórþolnir sundbolir eru ekki bara æfingasundbolir, því margir venjulegir sundbolir eru líka úr klórþolnum efnum. Almennar upplýsingar um efni, klórþol, umhirðu og stærðir sundfata finnur þú á síðunni Sundföt konur, og þú getur mátað sundboli í verslun Lúdus. Hér fyrir neðan svörum við algengum spurningum um sundboli.