Sundbuxur Herra Arena Fundamentals R - Dökkbláar

VISTVÆNAR SUNDBUXUR

Litur: Navy-Turquoise

Litur-color: Navy-Turquoise
Stærð: S
Stærðartafla ARENA karlar
Að neðan má sjá stærðartöflur frá framleiðandanum ARENA og leiðbeiningar um hvernig mæla skal stærðir.
Stærðir okkar frá ARENA eru miðaðar við Evrópskar stærðir og eru merktar D í stærðartöflunni.
Notaðu töfluna hér að neðan til að ákvarða stærð þína út frá mælingum þínum. Ef þú færð út mismunandi stærðarflokka eftir mismunandi líkamspörtum þá mælum við með að taka þá stærð sem þínar mælingar falla oftast innan. Ef þú ert á mörkunum milli tveggja stærða, pantaðu þá minni stærð fyrir aðþrengdara snið eða stærri stærðina fyrir lausara snið.

Á flestum vörusíðum má einnig finna viðmið hjá þeim módelum sem finnast á myndum og eru þær upplýsingar skráðar síðu hverrar vöru. Við mælum því með að skoða einnig textalýsingu við hverja vöru.

ARENA sundfatnaður:
Arena stærðartafla fyrir karla - Ludus.is
ARENA
Á lager

Stærðirnar okkar miðast við Evrópskar stærðir merktar D í stærðartöflu

Tilboðsverð6.995 kr

✅ Frí sending á afhendingarstaði 15.000+ kr
✅ 0-3 virkir dagar í afhendingu
✅ 14 daga skilafrestur

Hægt að sækja í verslun: Skólavörðustígur 16a

Yfirleitt tilbúið samdægurs eða næsta virka dag

Arena Fundamentals R sundbuxur herra – dökkbláar með túrkísbláu lógó, framhlið

Sundbuxur Herra Arena Fundamentals R - Dökkbláar

Navy-Turquoise / S

Skólavörðustígur 16a

Hægt að sækja í verslun, Yfirleitt tilbúið samdægurs eða næsta virka dag

Skólavörðustígur 16 a
101 Reykjavík
Ísland

+3547929900
Vörunúmer: 006443-781-S

Sundbuxur Herra Arena Fundamentals R – Dökkbláar með túrkísbláu lógó

Arena Fundamentals R eru klassískar sundbuxur fyrir herra sem sameina mýkt, endingu og minimalískt útlit. Þær eru úr 100% endurunnu pólýester sem er þekkt fyrir gott klórþol og saltvatnsþol – frábært val fyrir íslenskar sundlaugar og sjósundið.

Microfiber Peach Touch efnið hefur verið unnið þannig að yfirborðið verður extra mjúkt og þægilegt, með yfirborðsáferð sem minnir á hálfgerða rúskinnsáferð. Dökkblái liturinn með túrkísbláu Arena lógói er stílhreinn og passar við allt.

Helstu upplýsingar

  • Efni: 100% endurunnið pólýester
  • Mitti: teygjanlegt + band í mittisstreng
  • Innra net:
  • Vasar: opnir hliðarvasar + vasi að aftan með frönskum rennilás
  • Snið/sídd: boxer-snið, miðlungs sídd
  • Best fyrir: íslenskar sundlaugar og sjósundið

Helstu eiginleikar

  • Sérlega mjúk áferð – Microfiber Peach Touch vinnslan gefur mjúka, þægilega áferð sem er góð viðkomu
  • Gott klórþol og saltvatnsþol – 100% pólýester hentar vel bæði í íslenskar sundlaugar og í sjósundið
  • Fljótþornandi – þornar hratt og er þægilegt að nota bæði í sundi og utan laugar
  • Klassískt boxer-snið – þægileg miðlungs sídd sem hentar flestum

Snið og stærðir

Klassískt boxer-snið með þægilegri miðlungs sídd – hvorki of stuttar né of langar. Uppgefin sídd er 41,5 cm sem er þó aðeins breytileg eftir stærðum.

Fundamentals samsvara sér vel í stærðum og flestir taka sína venjulegu stærð.

Gott er að miða við minni stærð fyrir aðþrengra snið eða stærri stærð fyrir víðara snið, sérstaklega ef þú ert á milli stærða.

Efni og áferð

Fundamentals R sundstuttbuxurnar eru framleiddar með Arena Microfiber Peach Touch sundfataefninu úr 100% endurunnu pólýester. Þetta er tæknilegt efni sem hefur farið í gegnum vinnslu sem lyftir yfirborðinu örlítið og gerir það þægilegra viðkomu. 

Þetta gerir sundbuxurnar sérstaklega þægilegar, án þess að fórna endingu – fullkomið þegar þú vilt áreiðanlegar sundbuxur fyrir íslenskar sundlaugar með klór og sjósundið.

Hentar best fyrir

  • Þig sem vilt hámarks klórþol og saltvatnsþol í sundbuxum
  • Reglulegar sundferðir í íslenskum sundlaugum
  • Sjósundið og á ströndina
  • Þig sem vilt sundbuxur sem henta vel sem stuttbuxur á göngu erlendis
  • Þig sem vilt klassískt snið með mýkra efni sem er þægilegt á hreyfingu

Umhirða & ending

Til að tryggja að Arena sundfatnaðurinn endist sem lengst mælum við með að:

  • Handþvo úr hreinu vatni að lokinni notkun, sérstaklega ef sundfatnaðurinn hefur verið notaður í sundlaug með klór
  • Ekki skilja sundfötin eftir blaut í tösku eða poka til lengri tíma
  • Skiljið sundfötin ekki eftir blaut í tösku eða poka úti í sólinni
  • Þurrkið ekki á eða við ofn eða aðra hitagjafa
  • Ekki setja í þeytivindur í sundlaugum
  • Fylgið þvottaleiðbeiningum sem er að finna á fatnaðinum

Af hverju velja Arena Fundamentals?

Arena er rótgróið sundmerki sem hefur þróað sundfatnað og sundvörur síðan 1973 og leggur mikla áherslu á nýsköpun og tækni.

Fundamentals-línan er hönnuð fyrir þægindi og úr mjúku og endingargóðu efni fyrir sjó og sundlaugar.

Skoða fleiri valkosti

Sendum um allt land

Með Eimskip og Dropp

Hröð afgreiðsla

0 - 3 virkir dagar í flutningi.

Við tryggjum þína ánægju

14 daga skilafrestur. Sjá nánar um vöruskil