




Arena The One Mask Junior sundgríma 6–12 ára – Bleik og fjólublá
Litur: Bleik og fjólublá
Skygging linsu: 3

GLÆRAR LINSUR: Sundgleraugu með glærum linsum eru tilvalin fyrir umhverfi með lítilli birtu eða lýsingu og fyrir þau sem kjósa hámarks birtu í sundi.
MIÐLUNGS: Sundgleraugu með miðlungs dökkum linsum henta fyrir alla almenna notkun og fyrir umhverfi með breytilegu birtustigi eða miðlungs lýsingu.
DÖKKAR LINSUR: Sundgleraugu með dökkum linsum eru góð til að synda í vel upplýstu umhverfi eða fyrir þau sem kjósa hámarks ljósvörn.
Hægt að sækja í verslun: Skólavörðustígur 16a
Yfirleitt tilbúið tilbúið til afhendingar innan 1-2 klukkustunda á opnunartíma. Við sendum þér staðfestingu þegar pöntunin er tilbúin til afhendingar.

Arena The One Mask Junior sundgríma 6–12 ára – Bleik og fjólublá
Violet-Pink / 6-12 ÁRA
Skólavörðustígur 16a
Skólavörðustígur 16 a
101 Reykjavík
Ísland
Vítt sjónsvið í sundi og leik
Arena The One Mask Junior er sundgríma fyrir börn á aldrinum 6–12 ára, til að nota í sundtímum, sundferðum og leik í lauginni.
Bleikar linsur, bleikur rammi og fjólublá ól. Linsurnar hleypa 74% af sýnilegu ljósi í gegn. Létt skygging hentar vel þegar birtan er minni.
Helstu eiginleikar
- Vítt sjónsvið – barnið sér vel fram og til hliðanna í vatninu.
- Mjúk sílikonþétting – liggur að andlitinu í kringum augun.
- Stillanleg, klofin sílikonól – auðvelt að laga lengd ólarinnar að höfði barnsins.
- Sjálfstillandi nefbrú – aðlagast lögun andlitsins.
- Móðuvörn og UV-vörn – móðuvarnarhúð dregur úr móðumyndun og linsurnar veita vörn gegn útfjólubláum geislum.
- CE-merkt og prófuð samkvæmt ISO 18527-3:2020, staðli um kröfur og prófunaraðferðir fyrir sundgleraugu.
Stærð og snið
Ein barnastærð með leiðbeinandi aldursbili 6–12 ára. Mikilvægast er að þéttingin liggi jafnt að andliti barnsins. Stilltu ólina þannig að gríman haldist á sínum stað án þess að þrýsta óþægilega.
Hentar síður
Hentar síður börnum með mjög grönn andlit. Samkvæmt reynslu okkar hjá Lúdus getur myndast bil á hliðunum þannig að þétting grímunnar situr ekki að andlitinu og vatn getur lekið inn.
Reynsla viðskiptavina hjá Lúdus
Viðskiptavinir hafa lýst grímunni sem mjúkri og þægilegri. Sumir viðskiptavinir hafa sagt okkur að börnin þeirra kjósi hana fram yfir önnur sundgleraugu.
Efni og umhirða
Linsur og rammi eru úr pólýkarbónati; þétting og ól úr sílikoni.
Skolaðu grímuna með hreinu kranavatni eftir sund og láttu hana þorna áður en þú gengur frá henni. Ekki nudda linsurnar að innan eða þurrka þær með klút, því það getur skemmt móðuvarnarhúðina. Geymdu grímuna þannig að linsurnar séu varðar gegn rispum.
Frí sending á afhendingarstaði Eimskip og Dropp af öllum pöntunum yfir 15.000 kr
Pöntun þín er afhent flutningsaðila næsta virka dag. 0-3 virkir dagar í flutningi eftir staðsetningu
14 daga skilafrestur. Smelltu hér fyrir nánari upplýsingar um vöruskil











































