Sundbolur Konur Arena Performance Victoria U Bak - Neonblár

50+ UV-VÖRNARENA PERFORMANCEHÁMARKS KLÓRÞOLMIÐLUNGS SKORINNU-BAK

Litur: Neonblár

Stærðirnar okkar miðast við Evrópskar stærðir merktar D í stærðartöflu

Litur-color: Blue
Stærð: 36
Stærðartafla ARENA konur
Að neðan má sjá stærðartöflur frá framleiðandanum ARENA og leiðbeiningar um hvernig mæla skal stærðir.
Stærðir okkar frá ARENA eru miðaðar við Evrópskar stærðir og eru merktar D í stærðartöflunni.
Notaðu töfluna hér að neðan til að ákvarða stærð þína út frá mælingum þínum. Ef þú færð út mismunandi stærðarflokka eftir mismunandi líkamspörtum þá mælum við með að taka þá stærð sem þínar mælingar falla oftast innan. Ef þú ert á mörkunum milli tveggja stærða, pantaðu þá minni stærð fyrir aðþrengdara snið eða stærri stærðina fyrir lausara snið.

Á flestum vörusíðum má einnig finna viðmið hjá þeim módelum sem finnast á myndum og eru þær upplýsingar skráðar síðu hverrar vöru. Við mælum því með að skoða einnig textalýsingu við hverja vöru.

ARENA sundfatnaður:
Arena stærðartafla fyrir sundföt kvenna með líkamsmáli og alþjóðlegum stærðum.
Arena leiðbeiningamynd sem sýnir hvar mæla á líkama kvenna fyrir val á stærð.
Aðeins 2 eftir
Tilboðsverð10,995 kr

Hægt að sækja í verslun: Skólavörðustígur 16a

Yfirleitt tilbúið tilbúið til afhendingar innan 1-2 klukkustunda á opnunartíma. Við sendum þér staðfestingu þegar pöntunin er tilbúin til afhendingar.

Neonblár Arena Victoria sundbolur með V-hálsmáli, nærmynd skáhallt að framan.

Sundbolur Konur Arena Performance Victoria U Bak - Neonblár

Blue / 36

Skólavörðustígur 16a

Hægt að sækja í verslun, Yfirleitt tilbúið tilbúið til afhendingar innan 1-2 klukkustunda á opnunartíma. Við sendum þér staðfestingu þegar pöntunin er tilbúin til afhendingar.

Skólavörðustígur 16 a
101 Reykjavík
Ísland

+3547929900

Neonblár klórþolinn sundbolur fyrir konur með U-baki

Arena Victoria er sundbolur úr Arena Performance línunni fyrir konur sem synda reglulega og vilja endingargott efni.

Helstu upplýsingar

  • Framleiðandi: Arena
  • Vörulína: Arena Performance
  • Módel: Victoria
  • Vörunúmer: 008868-800
  • Litur: Neonblár

Sérstaða Victoria

Victoria sameinar klórþol Performance-línunnar og klassískt sundbolssnið með opnu U-baki, stillanlegum hlýrum og léttum stuðningi við brjóst.

Helstu eiginleikar

  • Hámarks klórþol: MaxLife Eco er hannað fyrir endurtekna notkun í klórvatni og hjálpar bolnum að halda lögun sinni.
  • Léttur stuðningur við brjóst: Active Support byggir á innra brjóststykki með mótandi saumum.
  • Stillanlegir hlýrar: þú getur lagað lengd hlýranna að þér svo þeir sitji þægilega yfir axlirnar.
  • Miðlungs skorinn: meiri þekja á mjöðmum en í hátt skornum sundbol.

Efni og áferð

Victoria er úr MaxLife Eco — 100% pólýester, þar af að lágmarki 50% endurunninn pólýester. Efnið er með 50+ UV-vörn.

Við tíðar sundferðir skiptir máli að efnið þoli klórvatn og haldi lögun sinni. Þess vegna mælum við hjá Lúdus með Arena Performance og MaxLife Eco þegar klórþol og ending í laug eru í forgangi.

Bolurinn er með fóðringu yfir brjóst og auka fóðringu við klof. Fóðringin yfir brjóst nær ekki niður yfir kviðinn.

Snið og stærðir

Victoria er með opnu U-baki og V-hálsmáli og fæst í stærðum 36–48. Stærðirnar fylgja þýska stærðarkerfi Arena og eru merktar D í stærðartöflunni.

Leiðbeiningar við stærðarval

Reynsla Lúdus er að Victoria henti oft síður konum með langan bol/búk. Í mátun velja sumar sína venjulegu stærð en aðrar eina stærð ofar. Berðu brjóst-, mittis- og mjaðmamál saman við Arena-stærðartöfluna og notaðu stærðirnar merktar D.

Sundbolurinn á að sitja þétt þegar hann er þurr án þess að þrengja óþægilega. Ef hann togar yfir axlir eða í klof þótt hlýrarnir séu rétt stilltir getur annað snið hentað betur. Þú getur mátað Victoria hjá Lúdus og fengið aðstoð við að finna rétta stærð og snið.

Hröð afgreiðsla

Við tökum pöntun þína til samdægurs eða næsta virka dag. 0-3 virkir dagar í flutningi eftir staðsetningu

Sendum um allt land

Frí sending á afhendingarstaði Eimskip og Dropp af öllum pöntunum yfir 15.000 kr

Við tryggjum þína ánægju

14 daga skilafrestur. Sjá nánar um vöruskil