




Sundbolur Konur Arena Performance Victoria U Bak - Svartur
Litur: Svartur
Stærðirnar okkar miðast við Evrópskar stærðir merktar D í stærðartöflu
Hægt að sækja í verslun: Skólavörðustígur 16a
Yfirleitt tilbúið tilbúið til afhendingar innan 1-2 klukkustunda á opnunartíma. Við sendum þér staðfestingu þegar pöntunin er tilbúin til afhendingar.

Sundbolur Konur Arena Performance Victoria U Bak - Svartur
Black / 36
Skólavörðustígur 16a
Skólavörðustígur 16 a
101 Reykjavík
Ísland
Svartur klórþolinn sundbolur fyrir konur með U-baki
Arena Victoria er sundbolur úr Arena Performance línunni fyrir konur sem synda reglulega og vilja endingargott efni.
Helstu upplýsingar
- Framleiðandi: Arena
- Vörulína: Arena Performance
- Módel: Victoria
- Vörunúmer: 008868-505
- Litur: Svartur
Sérstaða Victoria
Victoria sameinar klórþol Performance-línunnar og klassískt sundbolssnið með opnu U-baki, stillanlegum hlýrum og léttum stuðningi við brjóst.
Helstu eiginleikar
- Hámarks klórþol: MaxLife Eco er hannað fyrir endurtekna notkun í klórvatni og hjálpar bolnum að halda lögun sinni.
- Léttur stuðningur við brjóst: Active Support byggir á innra brjóststykki með mótandi saumum.
- Stillanlegir hlýrar: þú getur lagað lengd hlýranna að þér svo þeir sitji þægilega yfir axlirnar.
- Miðlungs skorinn: meiri þekja á mjöðmum en í hátt skornum sundbol.
Efni og áferð
Victoria er úr MaxLife Eco — 100% pólýester, þar af að lágmarki 50% endurunninn pólýester. Efnið er með 50+ UV-vörn.
Við tíðar sundferðir skiptir máli að efnið þoli klórvatn og haldi lögun sinni. Þess vegna mælum við hjá Lúdus með Arena Performance og MaxLife Eco þegar klórþol og ending í laug eru í forgangi.
Bolurinn er með fóðringu yfir brjóst og auka fóðringu við klof. Fóðringin yfir brjóst nær ekki niður yfir kviðinn.
Snið og stærðir
Victoria er með opnu U-baki og V-hálsmáli og fæst í stærðum 36–48. Stærðirnar fylgja þýska stærðarkerfi Arena og eru merktar D í stærðartöflunni.
Leiðbeiningar við stærðarval
Reynsla Lúdus er að Victoria henti oft síður konum með langan bol/búk. Í mátun velja sumar sína venjulegu stærð en aðrar eina stærð ofar. Berðu brjóst-, mittis- og mjaðmamál saman við Arena-stærðartöfluna og notaðu stærðirnar merktar D.
Sundbolurinn á að sitja þétt þegar hann er þurr án þess að þrengja óþægilega. Ef hann togar yfir axlir eða í klof þótt hlýrarnir séu rétt stilltir getur annað snið hentað betur. Þú getur mátað Victoria hjá Lúdus og fengið aðstoð við að finna rétta stærð og snið.
Ertu að velja réttu sundfataefnin fyrir þínar þarfir? Skoðaðu leiðarvísir okkar um Arena sundföt og sundfataefni fyrir íslenskar aðstæður, sundlaugar og þinar þarfir











































