Sundbolur Með Aðhaldi Arena Shapewear Alessia Clip Bak - Grænblár

Verð13,995 kr

Litur: Green-Blue

Stærðirnar okkar miðast við evrópskar stærðir merktar D í stærðartöflu.

Við mælum með að taka þína venjulegu stærð.

Stærð: 48
Stærðartafla ARENA konur
Að neðan má sjá stærðartöflur frá framleiðandanum ARENA og leiðbeiningar um hvernig mæla skal stærðir.
Stærðir okkar frá ARENA eru miðaðar við Evrópskar stærðir og eru merktar D í stærðartöflunni.
Notaðu töfluna hér að neðan til að ákvarða stærð þína út frá mælingum þínum. Ef þú færð út mismunandi stærðarflokka eftir mismunandi líkamspörtum þá mælum við með að taka þá stærð sem þínar mælingar falla oftast innan. Ef þú ert á mörkunum milli tveggja stærða, pantaðu þá minni stærð fyrir aðþrengdara snið eða stærri stærðina fyrir lausara snið.

Á flestum vörusíðum má einnig finna viðmið hjá þeim módelum sem finnast á myndum og eru þær upplýsingar skráðar síðu hverrar vöru. Við mælum því með að skoða einnig textalýsingu við hverja vöru.

ARENA sundfatnaður:
Arena stærðartafla fyrir sundföt kvenna með líkamsmáli og alþjóðlegum stærðum.
Arena leiðbeiningamynd sem sýnir hvar mæla á líkama kvenna fyrir val á stærð.

Stærðartöflur og mælingar í texta

ARENA – konur

ARENA – konur
Mæling / stærð F 28 F 30 F 32 F 34 F 36 F 38 F 40 F 42 F 44 F 46 F 48
A – Hæð (cm) 125 145 163 165 166 168 170 172 174 176 178
B – Brjóstmál (cm) 60 65 75 80 85 90 95 100 105 110 115
C – Mittismál (cm) 55 57 58 63 65 70 75 80 85 90 95
D – Mjaðmamál (cm) 70 79 87 88 90 95 100 105 110 115 120
F 28 30 32 34 36 38 40 42 44 46 48
UK 22 24 26 28 30 32 34 36 38 40 42
I 32 34 36 38 40 42 44 46 48 50 52
D 128JR 152JR 30 32 34 36 38 40 42 44 46
AUS 8–9 10–11 12–13 14–15 6 8 10 12 14 16 18
  • A – Hæð: Stattu upprétt og mældu frá hvirfli að iljum.
  • B – Brjóstmál: Mældu um fyllsta hluta brjóstanna.
  • C – Mittismál: Mældu um mjósta hluta mittisins.
  • D – Mjaðmamál: Mældu um fyllsta hluta mjaðmanna.

Stafamerkingar töflunnar og mælingamyndarinnar eru ólíkar. Brjóstmál B í töflunni samsvarar C á myndinni, mittismál C samsvarar D og mjaðmamál D samsvarar E. B á myndinni er efri brjóstummál og er ekki sjálfstæður tölureitur í þessari töflu.

ARENA – merkingar á mælingamynd kvenna

  • A: Hæð frá iljum að hvirfli.
  • B: Efri brjóstummál (high bust).
  • C: Brjóstmál um fyllsta hluta brjóstanna (full bust).
  • D: Mittismál.
  • E: Mjaðmamál.
Aðeins 2 eftir
Vörunúmer: 008869-600-48

Frí sending á afhendingarstaði Eimskips og Dropp frá 15.000 kr.

14 daga skilafrestur á pöntunum úr vefverslun. Skilmálar vöruskila

Frítt að sækja í verslun: Skólavörðustígur 16a

Yfirleitt tilbúið til afhendingar innan 1-2 klukkustunda á opnunartíma.

Grænblár Arena Alessia sundbolur með aðhaldi séður að framan

Sundbolur Með Aðhaldi Arena Shapewear Alessia Clip Bak - Grænblár

Green-Blue / 48

Skólavörðustígur 16a

Hægt að sækja í verslun, Yfirleitt tilbúið til afhendingar innan 1-2 klukkustunda á opnunartíma.

Skólavörðustígur 16 a
101 Reykjavík
Ísland

+3547929900

Grænblár sundbolur með aðhaldi fyrir konur með opnu Clip baki og V-hálsmáli

Arena Alessia er grænblár og fágaður sundbolur með aðhaldi fyrir konur sem vilja mótandi stuðning, góða þekju og opið bak.

Alessia hentar vel í reglulegar sundferðir, vatnsleikfimi, heita potta, heilsulindir og sólbað.

Helstu upplýsingar

  • Framleiðandi: Arena
  • Vörulína: Arena Shapewear
  • Undirlína / módel: Arena Shapewear - Alessia
  • Vörunúmer: 008869-600
  • Litur: Grænblár
  • Hálsmál: V-hálsmál
  • Bak: Clip bak
  • Skurður: Miðlungs skorinn
  • Stærðir: 36–50 í evrópskum stærðum, merktar D í stærðartöflu

Helstu eiginleikar

  • Sléttara snið yfir maga og mitti - Power Mesh aðhaldsnet veitir mótandi stuðning að framan
  • Sveigjanlegur brjóstastuðningur - fjarlægjanlegir púðar gera þér kleift að nota sundbolinn með eða án púða
  • Stillanlegt snið - hlýrarnir eru bundnir aftan við háls, svo hægt er að laga sundbolinn að líkamanum
  • Kvenlegt snið - V-hálsmál og opið Clip bak móta mjúkt og fallegt útlit
  • Góð þekja - miðlungs skurður veitir þægilega þekju á mjaðmasvæði

Hentar fyrir

Konur sem vilja aðhald, mótun, stuðning við brjóst og mjúka, teygjanlega sundboli sem þægilegt er að klæða sig í og úr.

Hentar síður

Þegar hámarks klórþol og ending vega þyngst. Skoðaðu þá klórþolna sundboli úr Arena Performance línunni.

Aðhald og stuðningur

Klassískur brjóstastuðningur með fjarlægjanlegum púðum. Stuðningurinn er með teygjubandi undir brjóstum og fóðringu yfir brjóstin. Veitir miðlungs stuðning.

Power Mesh aðhaldsnetið liggur að framan yfir maga og mitti og veitir aukið aðhald sem hjálpar sundbolnum að sitja þétt að líkamanum.

  • Tvöfalt efni að aftan: Nei

Hálsbindingin og klemman á þverbandinu eru aðskildar: hlýrarnir bindast aftan við háls en þverbandið lokast yfir bakið.

Efni

Alessia er framleiddur úr Arena Sensitive® FIT efni - 68% endurunnu pólýamíði og 32% LYCRA® Xtra Life™ elastani. Efnið er mjúkt, teygjanlegt og hannað til að móta útlínur líkamans.

LYCRA® Xtra Life™ eykur klórþol efnisins. Efnið þornar fljótt og er með UPF 50+ vörn gegn útfjólubláum geislum.

Leiðbeiningar við stærðarval

Flestar konur taka sína venjulegu stærð.

Sjá meira — Leiðbeiningar við stærðarval Sjá minna — Leiðbeiningar við stærðarval
  • Berðu samt alltaf mælingar þínar saman við stærðartöfluna áður en þú velur stærð.
  • Sundbolur með aðhaldi á að sitja þétt að líkamanum þegar hann er mátaður þurr. Sundfataefni víkka örlítið í vatni og gefa eftir með tímanum. Ef sundbolurinn situr þéttur þurr eru minni líkur á að hann pokist í sundi eða verði of laus eftir nokkrar notkanir.
  • Ef mælingar þínar lenda á milli tveggja stærða getur minni stærð gefið þéttara snið og stærri stærð meira rými. Notaðu stærðartöfluna sem viðmið og veldu út frá því hvernig þú vilt að sundbolurinn sitji.

Umhirða

  • Skolaðu sundbolinn strax eftir notkun í hreinu, köldu vatni.
  • Ekki láta hann liggja blautan lengi í poka eða lokuðu íláti.
  • Handþvoðu sundbolinn. Ekki setja hann í þvottavél.
  • Notaðu þvottaefni sem hentar viðkvæmum fatnaði.
  • Láttu sundbolinn loftþorna fjarri hitagjöfum og beinu sólarljósi.
  • Ekki setja hann í þurrkara eða þeytivindu í sundlaugum.
  • Fylgdu alltaf þvottaleiðbeiningum á merkimiða.

Ráð frá Lúdus: Eftir notkun í klórvatni er gott að leggja sundbolinn í kalt vatn.

Ráð frá Lúdus

  • Litur getur dofnað með tímanum við notkun í klórvatni, saltvatni og sólarljósi, auk þess sem sólarvarnir geta haft áhrif á efnið.
  • Reynslan hjá Lúdus sýnir að ljósir og bjartir litir láta yfirleitt fyrr á sjá en svartir og dökkir litir.
  • Hvítir, ljósir og pastellitaðir sundbolir geta tekið á sig gulleitan blæ við endurtekna notkun í klórvatni.

Vantar þig frekari upplýsingar?

Algengar spurningar um vöruna

Hér finnur þú algengar spurningar um Sundbolur Með Aðhaldi Arena Shapewear Alessia Clip Bak - Grænblár