Sundbolur Með Aðhaldi Arena Shapewear Isa Squared Bak C-skálar - Svartur og Bleikur

Tilboðsverð9,797 kr Upprunalegt verð13,995 kr
30% afsláttur

Litur: Black-Fairy-Rose

Stærðirnar okkar miðast við evrópskar stærðir merktar D í stærðartöflu.

Við mælum með að taka þína venjulegu stærð.

Stærð: 36
Stærðartafla ARENA konur
Að neðan má sjá stærðartöflur frá framleiðandanum ARENA og leiðbeiningar um hvernig mæla skal stærðir.
Stærðir okkar frá ARENA eru miðaðar við Evrópskar stærðir og eru merktar D í stærðartöflunni.
Notaðu töfluna hér að neðan til að ákvarða stærð þína út frá mælingum þínum. Ef þú færð út mismunandi stærðarflokka eftir mismunandi líkamspörtum þá mælum við með að taka þá stærð sem þínar mælingar falla oftast innan. Ef þú ert á mörkunum milli tveggja stærða, pantaðu þá minni stærð fyrir aðþrengdara snið eða stærri stærðina fyrir lausara snið.

Á flestum vörusíðum má einnig finna viðmið hjá þeim módelum sem finnast á myndum og eru þær upplýsingar skráðar síðu hverrar vöru. Við mælum því með að skoða einnig textalýsingu við hverja vöru.

ARENA sundfatnaður:
Arena stærðartafla fyrir sundföt kvenna með líkamsmáli og alþjóðlegum stærðum.
Arena leiðbeiningamynd sem sýnir hvar mæla á líkama kvenna fyrir val á stærð.
Aðeins 1 á lager

Frítt að sækja í verslun: Skólavörðustígur 16a

Yfirleitt tilbúið til afhendingar innan 1-2 klukkustunda á opnunartíma.

Nærmynd að framan af svörtum Arena Isa sundbol með aðhaldi, háu hálsmáli og fíngerðum bleikum skálínum.

Sundbolur Með Aðhaldi Arena Shapewear Isa Squared Bak C-skálar - Svartur og Bleikur

Black-Fairy-Rose / 36

Skólavörðustígur 16a

Hægt að sækja í verslun, Yfirleitt tilbúið til afhendingar innan 1-2 klukkustunda á opnunartíma.

Skólavörðustígur 16 a
101 Reykjavík
Ísland

+3547929900

Svartur sundbolur með aðhaldi fyrir konur með Squared baki og fíngerðum bleikum skálínum

Arena Isa er svartur sundbolur með aðhaldi fyrir konur sem vilja sundbol sem situr vel, veitir mótandi stuðning og góða þekju. Fíngerðu bleiku skálínurnar brjóta upp svarta litinn og gefa sundbolnum sportlegt en kvenlegt yfirbragð.

Isa hentar vel fyrir reglulegar sundferðir, vatnsleikfimi, heita potta, heilsulindir og notkun í sjó með réttri umhirðu eftir notkun.

Helstu upplýsingar

  • Framleiðandi: Arena
  • Vörulína: Arena Shapewear
  • Undirlína / módel: Arena Shapewear - Isa
  • Vörunúmer: 010815-590
  • Litur: Svartur með fíngerðum bleikum skálínum
  • Bak: Squared bak
  • Skurður: Miðlungs skorinn
  • Tvöfalt efni að aftan: Nei
  • Stærðir: 36–50 í evrópskum stærðum, merktar D í stærðartöflu

Helstu eiginleikar

  • Sléttara snið yfir maga og mitti - Power Mesh aðhaldsnet veitir mótandi stuðning að framan
  • Brjóstastuðningur í C-skálastærð - klassískur brjóstastuðningur fyrir konur sem þurfa stærri skálastærð
  • Stöðug baklína - Squared bak gefur ferningslaga snið með stuðningsríkum og stillanlegum hlýrum
  • Góð þekja - miðlungs skurður veitir þægilega þekju á mjaðmasvæði

Hentar fyrir

Konur sem vilja aðhald, mótun, stuðning við brjóst og mjúka, teygjanlega sundboli sem þægilegt er að klæða sig í og úr.

Hentar síður

Þegar hámarks klórþol og ending vega þyngst. Skoðaðu þá klórþolna sundboli úr Arena Performance línunni.

Aðhald og stuðningur

Power Mesh aðhaldsnetið liggur að framan yfir maga og mitti og veitir aukið aðhald sem hjálpar sundbolnum að sitja þétt að líkamanum.

Klassískur brjóstastuðningur í C-skálastærð með teygjubandi undir brjóstum og fóðringu yfir brjóstin. Veitir miðlungs stuðning.

Sama Isa snið er einnig til án C-skálastærðar: Sundbolur Með Aðhaldi Arena Shapewear Isa Squared Bak  - Svartur 

Ráð frá Lúdus: Reynslan okkar sýnir að rétt snið sem situr vel skiptir oft meira máli en skálastærðin ein og sér við val á sundbol með aðhaldi.

Efni

Isa er framleiddur úr Arena Sensitive® FIT efni - 68% endurunnu pólýamíði og 32% LYCRA® Xtra Life™ elastani. Efnið er mjúkt, teygjanlegt og hannað til að móta útlínur líkamans. LYCRA® Xtra Life™ elastan eykur klórþol efnisins. Það þornar fljótt, andar og er með UPF 50+ UV-vörn.

Leiðbeiningar við stærðarval

Flestar konur taka sína venjulegu stærð.

Sjá meira — Leiðbeiningar við stærðarval Sjá minna — Leiðbeiningar við stærðarval
  • Berðu samt alltaf mælingar þínar saman við stærðartöfluna áður en þú velur stærð. Ef þú hefur tök á, þá mælum við ávallt með að koma í verslun og máta sundfatnað til að finna þína réttu stærð
  • Sundbolur á að sitja þétt að líkamanum þegar hann er mátaður þurr. Sundfataefni víkka örlítið í vatni og gefa eftir með tímanum. Ef sundbolurinn situr þéttur þurr eru minni líkur á að hann pokist í sundi eða verði of laus eftir nokkrar notkanir.
  • Ef mælingar þínar lenda á milli tveggja stærða getur minni stærð gefið þéttara snið og stærri stærð meira rými. Notaðu stærðartöfluna sem viðmið og veldu út frá því hvernig þú vilt að sundbolurinn sitji.

Umhirða

  • Skolaðu sundbolinn strax eftir notkun í hreinu, köldu vatni.
  • Ekki láta hann liggja blautan lengi í poka eða lokuðu íláti.
  • Handþvoðu sundbolinn. Ekki setja hann í þvottavél.
  • Notaðu þvottaefni sem hentar viðkvæmum fatnaði.
  • Láttu sundbolinn loftþorna fjarri hitagjöfum og beinu sólarljósi.
  • Ekki setja hann í þurrkara eða þeytivindu í sundlaugum.
  • Fylgdu alltaf þvottaleiðbeiningum á merkimiða.

Ráð frá Lúdus: Eftir notkun í klórvatni er gott að leggja sundbolinn í kalt vatn.

Ráð frá Lúdus

  • Litur getur dofnað með tímanum við notkun í klórvatni, saltvatni og sólarljósi, auk þess sem sólarvarnir geta haft áhrif á efnið.
  • Reynslan hjá Lúdus sýnir að ljósir og bjartir litir láta yfirleitt fyrr á sjá en svartir og dökkir litir.
  • Hvítir, ljósir og pastellitaðir sundbolir geta tekið á sig gulleitan blæ við endurtekna notkun í klórvatni.

Vantar þig frekari upplýsingar?

Algengar spurningar um vöruna

Hér finnur þú algengar spurningar um Sundbolur Með Aðhaldi Arena Shapewear Isa Squared Bak C-skálar - Svartur og Bleikur