









Sundbolur Arena Shapewear Ludovica Soft Curve Back - Svartur
Litur: Black-Black-Multi
Stærðirnar okkar miðast við Evrópskar stærðir merktar D í stærðartöflu
Hægt að sækja í verslun: Hverfisgata 34
Yfirleitt tilbúið samdægurs eða næsta virka dag

Sundbolur Arena Shapewear Ludovica Soft Curve Back - Svartur
Black-Black-Multi / 36
Hverfisgata 34
Hverfisgata 34
101 Reykjavík
Ísland
Nánar um Arena Ludovica sundbolinn með aðhaldi
Arena Ludovica Soft Curve Back er glæsilegur svartur sundbolur með aðhaldi úr Shapewear línu Arena – heimsþekkta ítalska sundfatamerkisins sem hefur sérhæft sig í gæðum og hönnun frá 1973 .Sundbolurinn er hannaður fyrir konur sem vilja fallega mótaðar línur, mikinn stuðning og aukið sjálfstraust.
Sundbolurinn er svartur skreyttur fallegum hvítum, bleikum og fjólubláum línum, er með stillanlegum hlýrum, miðlungs skorinn og með áföstum púðum. Sundbolurinn er með fallegu Soft Curve baki sem sameinar þægindi, hreyfanleika og fallega baklínu. Power Mesh aðhaldsnet veitir sérhæft aðhald við maga sem mótar svæðið á náttúrulegan og þægilegan hátt.
Þessi sundbolur er með áföstum púðum og hentar vel í léttari sundæfingar og til afslöppunar í pottinum.
Stærðir
-
Sundbolurinn samsvarar sér vel í stærðum – flestar konur taka sína venjulegu stærð
Efni og tækni
-
Sensitive® FIT efni – 68% endurunnið nælon, 32% elastan (teygjuefni). Sameinar mótun, stuðning og teygjanlegt efni. Efnið er klórþolið, fljóþornandi og með UPF 50+ UV-vörn gegn útfjólubláum geislum sólarinnar
-
Lycra Xtra Life™ – Sérstakt teygjuefni sem er mun endingarbetra en venjulegt elastan og endist betur gegn klór, sólarljósi (UV-geisla), svita og öðrum efnum. Tryggir að sundfatnaðurinn haldi lögun sinni og teygju lengur. Í Sensitive® FIT efninu er Lycra Xtra Life™ notað til að styrkja og lengja líftíma efnisins
- Power Mesh – Sterkt og teygjanlegt efni sem veitir aðhald á maga (aðhaldsnet). Hjálpar til við að móta og slétta magasvæðið, styður við líkamann og veitir þægindi án þess að þrengja.
Mótun, stuðningur og eiginleikar
-
Sundbolur með aðhaldi – mótar línur og eykur þægindi
- Stillanlegar hlýrar – þægilegt að klæða sig í og góður stuðningur
- Miðlungs skorinn – veitir góða þekju á mjaðmasvæði
- Fljótþornandi efni sem andar vel – þornar hratt með góðum öndunareiginleikum
- Áfastir púðar – aukinn stuðningur og þægindi
- UV-vörn UPF 50+ – veitir áreiðanlega vörn gegn útfjólubláum geislum
- Klórþol – góð klórvörn fyrir reglubundna notkun í íslenskum sundlaugum
- Soft Curve bakhönnun – góður hreyfanleiki með fallegri baklínu
👤 Fyrir hverjar hentar Arena Ludovica sundbolurinn?
Arena Ludovica sundbolurinn er tilvalinn fyrir konur sem vilja sundbol með aðhaldi sem mótar línur og veitir stuðning án þess að fórna þægindum.
🌊 Af hverju Arena Shapewear?
Arena hefur frá árinu 1973 verið leiðandi í hönnun og framleiðslu á sundfatnaði og sundvörum. Shapewear-línan sameinar aðhald, stuðning og endingu – hönnuð fyrir konur sem vilja fallegt útlit, þægindi og aukið sjálfstraust í lauginni.
Smelltu hér til að skoða fleiri: sundboli með aðhaldi
Frí sending á afhendingarstaði Eimskip og Dropp af öllum pöntunum yfir 15.000 kr
14 daga skilafrestur. Smelltu hér fyrir nánari upplýsingar um vöruskil
Pöntun þín er afhent flutningsaðila næsta virka dag. 0-3 virkir dagar í flutningi eftir staðsetningu
Að velja rétt sundfataefni?
Ertu að velja réttu sundfataefnin fyrir þínar þarfir? Skoðaðu leiðarvísir okkar um Arena sundföt og sundfataefni fyrir íslenskar aðstæður, sundlaugar og þinar þarfir
Efni og eiginleikar
Stærðir og snið
Þvottur og meðhöndlun
