Frí sending á afhendingarstaði Eimskips og Dropp fyrir pantanir 15.000 kr. eða meira.
Frítt að sækja í verslun
Flutningsgjöld fyrir aðrar pantanir og heimsendingar fylgja verðskrá flutningsaðila hverju sinni. Sjá verðskrá Dropp.
Höfuðborgarsvæðið
Eimskip: 850 kr. · Dropp: 890 kr.
Afhendingartími: 0–1 virkur dagur.
Suðvesturhornið utan höfuðborgarsvæðisins
Eimskip: 850 kr. · Dropp: 1.090 kr.
Afhendingartími: 0–2 virkir dagar.
Landsbyggðin
Pakkastöðvar Eimskips: 850 kr.
Dropp: 1.090 kr.
Næsti afhendingarstaður Eimskips/Flytjanda: 1.750 kr.
Afhendingartími: 2–4 virkir dagar eftir staðsetningu viðskiptavinar.
Pantanir eru afhentar flutningsaðilum alla virka daga
Sendingarkostnaður birtist í greiðsluferlinu áður en gengið er frá pöntun.
Vöruskil
14 daga skilafrestur á pöntunum úr vefverslun.
Allar skila- og skiptivörur skulu vera í upprunalegu ástandi.
Hægt er að koma beint í verslun til að skila eða skipta vörum.
Ef endursenda þarf vörur þá skráir þú vöruskil inn á Mitt svæði.
Tvöfalt efni að framan: Já, yfir brjóst og með Power Mesh aðhaldsneti yfir maga og mitti
Tvöfalt efni að aftan: Nei
Helstu eiginleikar
Brjóstastuðningur fyrir stærri skálastærð – innsaumaður brjóstastuðningur án púða og án spanga
Sléttara snið yfir maga og mitti – Power Mesh aðhaldsnet veitir mótandi stuðning að framan
Góð þekja – miðlungs skurður veitir þægilega þekju á mjaðmasvæði
Situr vel – breiðir, stillanlegir hlýrar auðvelda þér að laga sundbolinn að líkamanum
Kvenlegt snið að framan – V-hálsmál gefur opnara og mýkra snið yfir bringu
U bak – U laga baklína myndar einfalt baksnið og styður við góða hreyfigetu
Dökkgrænir hlýrar og útlínur – dökkgræni liturinn brýtur upp dökkbláa litinn og gefur bolnum fallegt útlit
Hentar fyrir
Konur sem vilja aðhald, mótun, stuðning við brjóst og mjúka, teygjanlega sundboli sem þægilegt er að klæða sig í og úr.
Hentar síður
Þegar hámarks klórþol og ending vega þyngst. Skoðaðu þá klórþolna sundboli úr Arena Performance línunni.
Aðhald og stuðningur
Sniðið hentar vel ef þú þarft stuðning fyrir stærri skálastærð og kýst innsaumaðan brjóstastuðning í stað stuðnings með fjarlægjanlegum eða mótuðum púðum.
Saumarnir aðskilja og lyfta brjóstunum. Stuðningurinn er með teygjubandi undir brjóstum og fóðringu yfir brjóstum. Veitir miðlungs stuðning – hentar konum sem vilja mótun og lyftingu án þess að nota púða.
Ráð frá Lúdus: Reynslan okkar sýnir að rétt snið sem situr vel skiptir oft meira máli en skálastærðin ein og sér við val á sundbol með aðhaldi.
Efni
Daniela er framleiddur úr Arena Sensitive® FIT efni – 68% endurunnu pólýamíði og 32% LYCRA® Xtra Life™ elastani. Efnið er mjúkt, teygjanlegt og hannað til að móta útlínur líkamans. LYCRA® Xtra Life™ eykur klórþol efnisins og hjálpar því að halda teygju og lögun.
UV-vörn: UPF 50+
Leiðbeiningar við stærðarval
Flestar konur taka sína venjulegu stærð.
Sjá meira — Leiðbeiningar við stærðarvalSjá minna — Leiðbeiningar við stærðarval
Sundbolur á að sitja þétt að líkamanum þegar hann er mátaður þurr. Sundfataefni víkka örlítið í vatni og gefa eftir með tímanum. Ef sundbolurinn situr þéttur þurr eru minni líkur á að hann pokist í sundi eða verði of laus eftir nokkrar notkanir.
Umhirða
Skolaðu sundbolinn strax eftir notkun í hreinu, köldu vatni.
Ekki láta hann liggja blautan lengi í poka eða lokuðu íláti.
Handþvoðu sundbolinn. Ekki setja hann í þvottavél.
Notaðu þvottaefni sem hentar viðkvæmum fatnaði.
Láttu sundbolinn loftþorna fjarri hitagjöfum og beinu sólarljósi.
Ekki setja hann í þurrkara eða þeytivindu í sundlaugum.
Fylgdu alltaf þvottaleiðbeiningum á merkimiða.
Ráð frá Lúdus: Eftir notkun í klórvatni er gott að leggja sundbolinn í kalt vatn.
Ráð frá Lúdus
Litur getur dofnað með tímanum við notkun í klórvatni, saltvatni og sólarljósi, auk þess sem sólarvarnir geta haft áhrif á efnið.
Reynslan hjá Lúdus sýnir að ljósir og bjartir litir láta yfirleitt fyrr á sjá en svartir og dökkir litir.
Hvítir, ljósir og pastellitaðir sundbolir geta tekið á sig gulleitan blæ við endurtekna notkun í klórvatni.
Hér finnur þú algengar spurningar um Sundbolur Með Aðhaldi Arena Shapewear Daniela U Bak C-skálar - Dökkblár og Dökkgrænn
Hvaða stærð á ég að velja?
Sundbolurinn samsvarar sér vel í stærðum og flestar konur taka sína venjulegu stærð. Berðu samt alltaf mælingar þínar saman við stærðartöfluna áður en þú velur stærð. Ef þú ert á milli stærða gefur minni stærð yfirleitt þéttara snið en stærri stærð meira rými.
Hvernig á sundbolur með aðhaldi að sitja og helst hann vel í vatni?
Sundbolur með aðhaldi á að sitja þétt að líkamanum þegar hann er mátaður þurr. Sundfataefni víkka örlítið í vatni og gefa eftir með tímanum, svo best er að bolurinn sitji vel þettur að þér þurr.
Er sundbolurinn með aðhald yfir maga og mitti?
Já. Sundbolurinn er með Power Mesh aðhaldsneti yfir maga og mitti. Það veitir aukið aðhald og styður við sléttara snið á því svæði.
Hvernig er sundbolurinn skorinn?
Sundbolurinn er miðlungs skorinn og veitir góða þekju á mjaðmasvæði.
Hentar sundbolurinn í sundlaugar og klórvatn?
Já, sundbolurinn hentar reglulegri notkun í sundlaugum með réttri umhirðu. Fyrir daglega eða mjög tíða sundlauganotkun þar sem hámarks klórþol skiptir mestu máli er Arena Performance með MaxLife Eco betri kostur.
Hentar sundbolurinn í vatnsleikfimi?
Já, sundbolurinn hentar vel í vatnsleikfimi og léttar æfingar í vatni. Hann er hannaður með áherslu á stuðning, þægindi og mótandi aðhald, fremur en sem keppnissundbolur.
Hentar sundbolurinn í heita potta, lón og náttúrulaugar á Íslandi?
Já. Sundbolinn má nota í heita potta, lón og náttúrulaugar, en mikilvægt er að skola hann vel í hreinu, köldu vatni eftir notkun. Hiti, steinefni, klór og önnur efni í vatni geta haft áhrif á efni og liti með tímanum.
Má nota sundbolinn í sjó eða saltvatni?
Já, sundbolinn má nota í sjó eða saltvatni, en skolaðu hann vel í hreinu, fersku vatni eftir notkun. Saltvatn getur haft áhrif á efni og liti með tímanum, eins og á við um allan sundfatnað.
Er efnið endurunnið?
Já sundbolurinn er úr Arena Sensitive® FIT efni sem er 68% endurunnið pólýamíð og 32% elastan.
Hvað þýðir UPF 50+?
UPF 50+ er mælikvarði á sólarvörn í fatnaði. UPF 50+ þýðir að efnið veitir mjög mikla vörn gegn útfjólubláum geislum sólarinnar.
Hvernig á að þvo og hugsa um sundbolinn?
Skolaðu sundbolinn strax eftir notkun í hreinu, köldu vatni. Handþvoið aðeins, setjið hann ekki í þvottavél eða þurrkara og loftþurrkið fjarri hitagjöfum. Fylgdu alltaf þvottaleiðbeiningum á merkimiða.
Dofnar liturinn með tímanum?
Allur sundfatnaður getur látið á sjá með tímanum við notkun í klórvatni, saltvatni og sólarljósi. Ljósir og bjartir litir láta yfirleitt fyrr á sjá en svartir og dökkir litir.
Hver er munurinn á Arena Shapewear og Arena Performance?
Arena Shapewear leggur áherslu á aðhald, stuðning, mótun og þægindi fyrir reglulegar sundferðir, vatnsleikfimi og afslöppun. Arena Performance er hönnuð fyrir keppnissund og reglulegar sundæfingar þar sem hraði, frammistaða og hámarks klórþol skipta mestu máli.
Hver er munurinn á C-skálasniði og D-merkingu í stærðartöflunni?
C vísar til brjóstasniðs sundbolsins. D í stærðartöflunni merkir evrópska stærðarkerfið sem við notum við stærðarval. D er því ekki skálastærð.